Fráveituhreinsun
Hreinsistöð fyrir vinnslustöðina í Vestmannaeyjum

Iðnver er stolt af því að hafa í samstarfi við Huber Technology aðstoðað Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum (VSV) við að setja upp HDF hreinsibúnað. Búnaðurinn hreinsar allt frávatn frá uppsjávarvinnslu, bolfiskvinnslu og bræðslu VSV sem er nauðsynlegt til að uppfylla starfsleyfi félagsins.
Með samvinnu Iðnvers við Huber er leitast við að tryggja að VSV fylgi öllum reglum um hreinsun á frávatni. Með þessari uppsetningu er lögð áhersla á hringrásarhagkerfið, en markmiðið er að endurnýta prótein úr frávatninu.
Með þessu fæst aukin verðmætasköpun á hverjum degi, en það er áætlunin að endurnýta allt prótein (e. sludge) úr frávatninu, s.s. fitu og föst efni og breyta þessum úrgangi sem annars hefði farið í sjóinn í verðmæti (mjöl og lýsi).
Fráveituhreinsun
Gámahreinsistöð
Iðnver hefur selt gámahreinsistöðvar víðsvegar um landið. Um er að ræða fullbúna lausn sem getur annað allt frá litlum verksmiðjum yfir í heilu bæjarfélögin. Endilega hafðu samband við okkar sölumenn og við hjálpum þér að sníða lausn eftir þínum þörfum.
Hreinsistöð fyrir vinnslustöðina í Vestmannaeyjum
Iðnver er stolt af því að hafa í samstarfi við Huber Technology aðstoðað Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum (VSV) við að setja upp HDF hreinsibúnað.
Sólheimar festa kaup á lífrænni hreinsistöð
HiPAF hreinsistöð til notkunar hjá Sólheimum.
Lífræn hreinsistöð í Höfnum
Iðnver óskar fráveitu Reykjanesbæjar til hamingju með lífrænu hreinsistöðina sem verið er að setja niður í Höfnum. Stöðin mun hreinsa stóran hluta skólps í sveitarfélaginu.


